Sumarblómin sett niður

Það er hefð fyrir því í Ási að heimilisfólkið sæki sér sumarblóm og setji í ker eða potta nú eða við dyrnar hjá sér.  Það er stemning sem fylgir gróðursetningunni, mold í stórum körum og hægt að velja úr allskonar sumarblómum sem eru ræktuð í gróðurhúsum Grundarheimilanna.