Páskaeggjabingó í Mörk

Það eru að koma páskar og í Mörk fer það ekkert á milli mála. Búið er að skreyta á hæðum heimilisins og ungar og páskablóm prýða borðin.  Í vikunni var boðið upp á bingó þar sem páskaegg voru í verðlaun. Allir sælir með slíkan vinning.